Stelpurnar

Velkomin(n)

21.01.2009 22:13:43 / Björg

afmælis

sælar, það er komin tímasetning á partyinu......
það verður á laugardaginn 24. jan kl party:)
ætla allar að mæta??:)
kv björg


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 17:00:07 / anna

Matarboð - taka tvö...

Okei, sorrí hvað ég hef skilið ykkur hérna eftir í lausu lofti. Ég hef ekki kíkt á síðuna í langan tíma og vissi ekkert af umræðunum hér fyrir neðan....
En allavega, þá er Björg semsagt að fara að halda smáafmæli um næstu helgi þannig að hún er bókuð. Það er allt í gúddí og þá er eftir helgin 30-31 janúar fyrir mig...
En hvað segjiði þá um að koma til mín í mat föstudaginn 30. janúar.
Lausar??????
Anna


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 22:05:21 / anna

Matarboð - Lausar 10 janúar???

Gleðilegt nýtt ár píur nær og fjær...

Nú er komið að mér að vera gestgjafinn ykkar þennan mánuðinn og ég var að pæla hvort þið væruð lausar næsta laugardag?

Ég veit að þetta er mjög stuttur fyrirvari en ég er hvort eð er að fara að djamma þennan dag og datt í hug að skella þessu tvennu saman. Þannig að við getum borðað saman og síðan geta þær sem vilja fengið sér öl með mér og við röllt síðan niður í bæ...

Hvað segjiði? Eruð þið lausar?

Ef þið komist ekki, þá er það allt í gúddí; við finnum þá bara annan dag.

Kveðja Anna


» 14 hafa sagt sína skoðun

15.12.2008 21:57:21 / Björg

Próflok og helgin

Sælar dömur mínar,

Hugmynd um að fagna próflokum og gleyma sorgum um helgina kom upp. Tillaga:
Stúdentaball á föstudag með FM Belfast og Gullfoss & Geysi!
...eða eitthvað grúví djamm á laugardag! (ratatat?)

Hvort er meira inn??
Hverjar eru memm??

Kv Björg



» 10 hafa sagt sína skoðun

09.11.2008 13:37:10 / Björg

Leiðrétting!!!

ég er ótrúlega stupit!!!!1

Rétta dagsettningin er 21.nóv og er föstudagur
sorry!

» 10 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 22:38:52 / Björg

Fyrsti í "Matardótinu"

Jæja dömur,
ég er búin að negla niður dagsetningu fyrir matardótið. Verið spenntar og takið frá 22. nóvember.
Ég mun taka til og elda eitthvað djúsí í kvöldmat....svo takaið kveldið frá:)
kv frá vinnudýrinu mikla, Björg (væri til að vera með ykkur núna hjá snæ að örugglega ekki að borða ennþá:))

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.10.2008 16:57:22 / snæfríður

Hæ pæjur

Heyrðu eg er æst í að fá ykkur í heimsókn á laug eða sun... og allveg til í að elda ofan í ykkur meirað segja ;).... En ég væri mjög til í að vita hverjar sægju sér fært að mæta og hvort kvöldið væri hentugra........ komment plís

» 10 hafa sagt sína skoðun

25.10.2008 23:35:25 / anna

Litið upp úr lögfræðinni....

Þar sem ég sit hér sveitt við að glósa réttarsögu eftir Sigurð Líndal, verð að viðurkenna að ég hef skemmt mér betur um ævina, varð mér hugsað til ykkar pía....

Málið er að það eru ÁR og DAGAR og jafnvel ÁRATUGIR síðan við djömmuðum saman. Eftir að við fórum allar að stinga nefjum okkar aftur niður í bækurnar höfum við varla hist, ja eða bara ekki neitt sbr. Björg nokkur Guðmundsdóttir, og þetta er alls ekki nógu gott.

Þannig að ég var að pæla hvort að við ættum ekki að plana DJAMM SAMAN????

Engar áhyggjur, ég geri mér grein fyrir því að allir eru upp að eyrum í lærdómi og hægara sagt en gert að plana e-ð núna þar sem enginn veit hvernig hann er staddur í námi eftir einhverja daga, jafnvel vikur, t.d. er ég að glósa það sem ég las fyrir löngu og ætti að vera búin með fyrir löngu en.... Þannig að ég var að pæla; djamm saman milli jóla og nýárs, ja eða eftir prófin ef það hentar betur???? Þá eru við hvort eð er í fríi og enginn búinn að vita hvort hann sé fallinn í e-u eða ekki svo þetta gæti ekki verið betri tími til að drekkja áhyggjum sínum og sorgum í góðra vina hópi????

Kannski er þetta bara af því ég nenni ekki að vera að glósa og langar að vera með einn kaldan við hönd á ölstofum bæjarins en mig langar mjög að halda eitt gott djamm saman svona upp á gamla tíma. Ég veit að ákveðnir aðilar geta ekki verið með, munu hafa flúið land á þessum síðustu og verstu en hvað um það, við hinar getum skálað fyrir þeim.

En hvað segjiði, djamm í lok desember/byrjun janúar???

Og Snæ er enn plan um hitting hjá þér um næstu helgi eller? Og Bergur, ertu komin með matarboðsdagsetningu????

Jæja, ætli ég verði ekki að snúa mér aftur að réttarsögunni, megi hún brenna....
Anna


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 15:36:53 / Björg

Tilaga um bjartari framtíð

Sælar dömur mínar,
mig hefur lengi langað til að byrja á þessu og þetta er án efa besti tíminn til þess. Við eigum nefnilega mjöög erfitt að hittast allar og ég vil gjarnan þekkja ykkur í framtíðinni.

Tillaga mín: Matarklúbbur einu sinni í mánuði. 

Afhverju? Við erum átvögl og skemmtilegur félagsskapur.

Hvernig?  Við erum 8 talsins ( 7 þar sem Hauður býr í London og frekar dýrt að fljúga þanngað fyrir 1 matarboð) og þá fer þetta bara eftir stafrófsröð ( auðveldast að muna). Sú sem á mánuðinn ákveður dagsetningu með fyrirvara og eldar/bakar/kaupir eitthvað og býður hinum. Þær sem komast ekki koma ekki og þær sem komast koma


Hvernig lýst ykkur á þetta?????


» 28 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 17:24:33 / Björg

laugardagur

Sælar dömur mínar,
mig langar að bjóða ykkur í síðasta sinn á Snorrabrautina, mitt síðasta djamm þar...svo það væri nú gaman ef þið kæmuð allar!
svo er það að 6 sept núna á laugardaginn er það (þið megið endilega koma með vina með ykkur;))
hvað segiði?? endilega látið mig vita...:)
björg

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 20:01:44 / Björg

Sumarbústaðarferð

Jæja dömur það er þannig að við ætlum að fara á laugardaginn kl 5 af stað frá Reykjavík. Þá komum við um kvöldmatarleitið uppí bústað. Það er grill og hver og ein kaupir bara mat fyrir sjálfa sig...easy peasy. Ef einhver er ekki búin að kaupa mat er allveg hægt að stoppa í Hveragerði eða Selfossi, en helst vera búin að kaupa ....auðveldar málið. Við verðum yfir eina nótt. Það eru sængur og koddar og dýnur svo ekkert þarf að hafa með sér í rauninni.

Svo það sem þarf að koma með:
matur fyrir ykkur.... Það er samt eitthvað af cheeriosi og múslí til svo þið getið fengið af því í morgunmat, vantar bara eitthvað út á það.
Drykkjarföng (áfengi ef þið viljið)
Hlý föt, það getur orðið kalt.
Náttföt
Tannbursta

aðrar nauðsynja vörur sem þið notið:)

Vonandi er þetta ekki of flókið;)
kv björg

» 17 hafa sagt sína skoðun

16.08.2008 02:34:41 / hoppa

Jahhá!

Þar sem við erum nú allar undir sömu stjörnunum þessa stundina er þá ekki kjörið tækifæri fyrir hitting. Já, einmitt, allar rosa bissí, erfitt að hittast á virkum dögum, allir að vinna á mis og annað að gera en hvað segiðði þá um að koma með uppástungur hvað við getum gert þann 23.

Var hann ekki annars tekinn frá hjá öllum fyrir okkur. Allar 7 á sama stað, á sama tíma í sama lífi, jájájá!

Látiði nú í ykkur heyra!


» 33 hafa sagt sína skoðun

30.07.2008 05:30:15 / hoppa

Neisko!

Mér tókst að komast inn!!!

Úff... Ég hef sko reynt a.m.k. 3svar að komst inn á "vefstjórnina" til þess að henda inn færstlu en ég bara kann ekki lykilorðið mitt! Ekkert gekk upp, allt farið í vaskinn þangað til núna þegar ég nývöknuð (með skömm í hjarta) á næturvakt. Frábært.

Nú man ég auðvitað ekkert hvað það var sem ég ætlaði að deila með ykkur síðast þegar mér datt í hug að blogga svo ég bara bulla eitthvað núna.

Takk kærlega fyrir síðast! Þetta var æðislegt. Rosalega góður matur, gott spjall og djamm (hahaha... þeir sem höfðu hemil á sér...). Eins og við segjum alltaf, við verðum að gera þetta oftar. Það ætti nú ekki að vera erfitt að framkvæma.

Við höfum nú ákveðið tímasetningu fyrir hitting, 23. ágúst. Spurning um að pæla í sameiningu hvað skal gera á þeim merka degi þegar við erum ALLAR á saman á Íslandinu góða.

Endilega komiði með uppástungur jáhh... eða kröfur um hvað skal gera þann 23. ágúst þegar Raul Casanova, hafnabotamaður frá Puerto Rico fæddist 1972.

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 20:56:46 / snæfríður

Lengi lifi bloggið!

Já við Hrafnhildur ákváðum að endurvekja bloggið góða og búumst við gífurlegri virkni meðala með bloggara okkar... já nú skuluði hefjast handa við skriftir!;)

Já en aðal ástæða fyrir því að ég er að blogga er að ég var að spá hvort þið vilduð ekki koma til mín á föstudag og við myndum borða saman...ég skal elda eitthvað gott og þið bara mætið og verðið sætar (kannski með smá pening ti lað leggja í púkk 500 kall eða eitthvað)... Við Hoppa töluðum um að hittast frekar snemma, bara borða svona um 6 eller noget...lýst ykkur ekki bara vel á þetta??? Svo er Hrafnhildur víst með eitthvað teiti eða eitthvað um kveldið...veit reyndar ekki hvort við erum boðnar í það en býst svona frekar við því;) Annars getum við bara verið hjá mér þeir sem vilja;)

Jæja kommentiði nú og byrjið svo að blogga;)
LOVE SNE

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 19:32:14 / anna

Kongsins København...

Sælar

Bara ad minna ykkur a stafsetningarvillu-bloggid okkar herna uti:
www.skyttunar3.bloggar.is

Er annars komin til Køben.
Anna





» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16